Þú þekkir örugglega einhvern sem ætti að streyma.
Sendu honum hlekkinn þinn. Stofni hann myStaze-aðgang í gegnum hann og fari að selja miða á streymin sín færðu greitt af hverjum seldum miða næstu 5 ár.
Ókeypis og tekur um mínútu.
Náðu í hlekkinn
Skráðu þig inn og hlekkurinn og QR-kóðinn bíða þín. Engin umsókn og engin bið.
Sendu hann á réttan mann
Tónleikahaldari, tónleikastaður, klúbbur, hátíð eða hljómsveit sem þarf að vísa fólki frá við dyrnar. Ein kynning vegur þyngra en þúsund fylgjendur.
Þú færð greitt á meðan hann selur
Þú sérð hverjir komu inn í gegnum þig og hversu marga miða þeir hafa selt. Peningarnir fylgja miðunum, mánuð eftir mánuð, án þess að þú gerir meira.
Það sem þú færð
Við tökum fast gjald af skipuleggjandanum fyrir hvern seldan miða og 25 % af því gjaldi er þitt: um 0,25 EUR af hverjum miða í 5 ár frá fyrsta streyminu hans. Hluturinn kemur úr þóknuninni okkar, aldrei úr miðasölunni hans, svo það sem þú færð kemur ekki úr hans vasa.
Öll geta verið með
Þú þarft ekki að vera áhrifavaldur og engri fylgjendatölu þarf að ná. Ábending innan úr bransanum telur nákvæmlega jafn mikið og hlekkur sem deilt er með stórum hópi.
Þóknun greiðist af miðum sem raunverulega seldust og voru greiddir. Skilmálarnir í heild þegar þú skráir þig.
Sæktu hlekkinn þinn